Biðstaðir fyrir puttalanga til að komast til baka

Góð hugmynd sem Jónas hefur komið í framkvæmd. Þarf ekki líka að hafa svona skilti á Ísafirði svo ferðalangar komist nú líka til baka til Súðavíkur eða Bolungarvíkur?
mbl.is Biðstaðir fyrir puttaferðalanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver treystir þeim til að framfylgja skoðun fólksins í landinu?

Enn og aftur kyssa þau á vöndinn. Ég treysti þeim ekki til að framfylgja málinu með öfugum formerkjum á því sem þau hafa hingað til haldið fram. Þau verða að biðjast lausnar og leyfa trúverðugum fulltrúum að berjast fyrir okkur með öllum þeim rökum sem hafa komið fram í Icesave-málinu.
mbl.is Ný leið mörkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða áminning og hverjir áttu í hlut?

Nokkuð erfitt að átta sig á þessari frétt. Er kannski verið að tala um Ólínu Þorvarðardóttur fyrrverandi skólameistara á Ísafirði og núverandi þingmann Samfylkingar? Er hún sem sagt búin að fá uppreisn æru?
mbl.is Áminning ráðuneytis ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áminning ráðuneytis ólögmæt

Nokkuð erfitt að átta sig á þessari frétt. Er kannski verið að tala um að Ólína Þorvarðardóttir fyrrvernadi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði  og núverandi þingmaður Samfylkingar hafi kært ákvörðun ráðuneytis og sú ákvörðun hafi verið felld niður?


Nýtt nafn á Kaupþing verði ESJA

Er ekki alveg ljóst að nafnið verður ESJA? Eftir hrun breyttist swiftnúmer bankans og það liggur eiginlega í hlutarins eðli að þá hafi þetta nafn verið ákveðið til framtíðar þó svo að núna fyrst muni breytingin eiga sér stað.
mbl.is Nýtt nafn á Kaupþing?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt nafn á Kaupþing

Er ekki nokkuð ljóst að nýja nafnið verður Esja? Það hefur trúlega verið í pípunum síðan eftir hrun þegar swift númer bankans breyttist.

Ánægjulegt að lesa jákvæðar fréttir

Ég samgleðst Súðvíkingum með þennan áfanga, frábært hjá þeim Þorleifi og Braga að bæta þessari framleiðslu við Murr kattamatinn, góðir drengir á réttum stað sem sjá möguleikana og láta vaða. Jákvæð frétt en smá líti að mbl.is skuli skrifa á Súðavík en við sem erum frá Súðavík vitum að það er skrifað í Súðavík eins og í Reykjavík. Þumalputta reglan er sú að víkur sem eru austan við ímyndaða línu sem dregin er frá Hólmavík til Víkur í Mýrdal eru með forsetningunni á en vestan við línuna eru víkur skrifaðar með forsetningunni í.
mbl.is Íslenskur hundamatur brátt á markað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki 80 þúsund kall á klukkutímann

Ekki vildi ég hafa bæjarfulltrúa sem ætti bara að vera bæjarfulltrúi á launum meðan hann situr fundi. Ég tala af reynslu þegar ég fullyrði að það eru ófáar klukkustundirnar sem vinna þarf við upplýsingaöflun, lestur fundargagna og bakgrunns upplýsinga áður en mætt er á klukkustundar fund. Án undirbúnings fyrir fund tel ég lítið gagn í því að mæta yfir höfuð á fundi. Það er því ansi mikil villa í þessu reikningsdæmi um kaup per klukkustund hjá Kristjáni Þór sem bæjarfulltrúa sem haldið var fram af fyrirspyrjanda og eftir því sem ég best veit að Steingrímur J. tók svo undir. Ég geri ráð fyrir því að skynsemis maðurinn Kristján Þór hafi tekið þá góðu ákvörðun að eyða ekki dýrmætum mínútum í þessar útskýringar á framboðsfundinum sem sýndur var beint í RUV í kvöld, enda átti sá fundur ekki að fjalla um bæjarstjórnarmál.


mbl.is Segir Steingrím búa í glerhúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipta um orkusala nær ómögulegt

Mig langaði að prófa að skipta um orkusala fyrir húsnæði mitt og sjá hvernig þetta virkaði í raun. Í júní óskaði ég símleiðis við orkufyrirtæki að skipta við það fyrirtæki og gaf upp allar upplýsingar sem óskað var eftir.  Ekkert hafði gerst í lok júlí svo ég hafði aftur samband við þetta orkufyrirtæki og ítrekaði beiðni mína og ég óskaði eftir upplýsingum um hvernig þetta gengi fyrir sig. Viðmælandi minn sagði að Netorka væri samræmingaraðilinn en álestur færi fram hjá starfsmanni þess orkufyrirtækis sem ég væri búsett í og þær upplýsingar færu til Netorku. Reikningur fyrir notkun kæmi svo frá því fyrirtæki sem ég óskaði eftir að vera í viðskiptum við. Það er skemmst frá því að segja að þrátt fyrir að ég hefði faxað orkureikninga mína þarna í júlí til þessa orkufyrirtækis sem ég ætlaði að prófa að vera í viðskiptum við og hefði gefið upp kreditkorta númerið mitt fyrir gjaldfærslu á það, þá hefur bara akkúrat ekkert gerst, ég er enn í viðskiptum við gamla orkufyrirtækið. Fyrsta beiðni í júní og ég sé í heimabankanum mínum að reikningur sem greiða á í nóvember er líka hjá mínu gamla orkufyrirtæki.

Augljóst að einhvað er að klikka í þessu ferli hjá einhverjum!


mbl.is Lítt þróaður orkumarkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvæð hugsun í mótlæti

Það er ánægjulegt að lesa á heimasíðu bridge.is að sonur minn er að gera það gott með liði sínu á ólympíuleikunum í bridge í Bejing í Kína. Þegar 14 umferðir af 17 eru búnar eru þau í 10. sæti af 74. Þau keppa fyrir 28 ára og yngri en Jón Baldurs og co. keppa í opna flokknum, það fóru sem sagt tvö lið frá Íslandi á þessa heimsleika, eitt í hvorum flokki fyrir hönd Íslands. Dóttir mín er í háskólanámi í Kína  í alþjóðaviðskiptum svo það er dálítið undarleg tilfinning að bæði börnin séu í Kína núna, ekki hefði mig grunað þetta fyrir um ári síðan.

Ég ákvað í kjölfar þessa ólguástands í efnahagsmálum þjóðarinnar og reyndar heimsins alls og umferðarslyss sem ég lenti í í gærkvöldi þar sem bíllinn minn gjöreyðilagðist og ég slapp ótrúlega vel m.v. aðstæður, að hugsa bara jákvætt og senda frá mér jákvæðar og uppbyggjandi hugsanir. Ég er sem sagt heima hálfvönkuð, toguð og teygð og kemst ekki í vinnu og reyni að tileinka mér að hugsa einungis eins og Pollýanna í samnefndri bók. Er ekki eina leiðin til að lifa þetta af að brosa bara út í annað þegar maður sér íbúðalánið hækka takmarkalaust milli greiðsludaga?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband